Námskeið í býrækt.
Skv aðalfundi Bý í apríl 2024 var ákveðið að halda námskeið í býrækt veturinn 2025, fyrir áhugasama ef næg þátttaka fæst (minnst 20 manns).
Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, í fundarsal Heilsugæslunar í Árbæ. Námskeiðið fer fram á 4 helgum, laugar- og sunnudag 9-15 með 30 min matarpásu og 2 x 15 min kaffi. Þetta til að landsbyggðarfólk komist frekar.
Farið verður í öll grunnatriði býræktar:
Það verður eðlilega farið í miklu fleiri atriði og að miklu leyti stuðst við heimasíðuna www.byflugur.is auk annars fræðsluefnis aðgengilegt fyrir námskeiðsþátttakendur á dropbox.com. Notast verður við skjávarpa auk annars fræðsluefnis.
Möguleiki er á að sækja námskeiðið í gegnum fjarfundarbúnað en mætingarskylda er á verklega þætti námskeiðsins og í próf að loknu námskeiði.
Kennsla: Líklegustu dagsetningar eru hér að neðan, ræðum það nánar þegar nær dregur.
Þetta gera um 45 klst.
Mörg stéttarfélög veita styrk til félagsmanna ef sótt er um.
Innifalið er aðgangur að kennslu/fræðsluefni og kaffi og meðlæti.
Ef farið er út í að kaupa býflugur er verðið uþb 80 000 kr fyrir hvern afleggjara,
Gróft reiknað um 130 þ hver kúpa, klæðnaður minnst um 25000 auk þess þarf að kaupa frjódeig ca 10000 og tugi kílóa af sykri.
Félagsgjald er greitt árlega og skal greiðast fyrir Aðalfund til að félagsmaður hafa fullan atkvæðisrétt á Aðalfundi. Félagsgjald hefur undanfarin ár verið kr 5000.